157. löggjafarþing — 79. fundur, 5. mars 2026.
stjórnvaldsaðgerðir Matvælastofnunar.
497. mál
Frú forseti. Það er brýnt að fá sem fyrst viðbrögð og svör við þeim tíu atriðum sem listuð eru upp í þessari skýrslubeiðni. Ég vil þakka þeim sem stóðu ásamt mér að þessari beiðni, þ.e. fulltrúum frá Flokki fólksins og Samfylkingunni, fulltrúum frá Sjálfstæðisflokki og fulltrúum frá Viðreisn. Hér er alls ekki um neina aðför að MAST að ræða heldur liður í að finna út hvar skórinn kreppir og hvað betur megi fara, hvernig stjórnvöld geta styrkt og stutt þessa mikilvægu stofnun.