157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

frammistaða nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskólum.

500. mál
[11:14]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Nú greiðum við á ný atkvæði um þessa skýrslubeiðni þannig að ég vænti þess að mennta- og barnamálaráðuneytið verði fljótt að svara henni núna. Ég tel að upplýsingar séu mikilvægar fyrir þau gæðakerfi sem við höfum, þannig að þetta er hluti af því að auka upplýsingagjöf til að geta brugðist við ef þarf þar sem skórinn kreppir mögulega í grunnskólunum. Ég vona að þessi skýrsla komi hratt og örugglega þannig að við getum ákveðið næstu skref hvað það varðar.