leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði hér um mikilvægt mál sem lýtur að öryggi farþega í leigubílum, leigubílaakstri. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og við erum að fara að hefja hér störf leigubílstjóra aftur til vegs og virðingar. Þetta eru gríðarlega mikilvæg störf í samfélaginu. Þeir aka með fatlað fólk, aldraða, oft ölvað fólk og ferðamenn. Það er gríðarlega mikilvægt að við samþykkjum þetta frumvarp núna til að tryggja öryggi farþega, leitast við að tryggja öryggi farþega. Síðasta löggjöf var því miður þannig að þessi málaflokkur fór eins og hann fór, miklu verr en við bjuggumst við, og ég vonast til að geta komið með annað frumvarp í haust sem lýtur að öðrum þáttum í þessum lögum. — Takk fyrir.