157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:18]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég styð auðvitað þetta mál og hvet hæstv. ráðherra til frekari dáða á þessu sviði, að koma þessu í lag, þótt fyrr hefði verið. Ég vonast til að ráðherra komi fljótlega hér með fleiri lagfæringar á þessu sviði. Hins vegar ætla ég einnig að nefna í þessari ræðu minni umræðurnar hér á Alþingi.

Frú forseti. Lagafrumvörp eiga að fá þrjár umræður. Það er lögbundið. Þau eiga að fá þrjár umræður. Nú ber svo við, sem allur gangur er á, ég veit það, frú forseti, að gengið er til atkvæða strax að lokinni 3. umræðu eins og hér er gert og hefur stundum verið áður. En oftast nær hefur þetta verið hinsegin, að gefinn hefur verið kostur á 3. umræðu og síðan er atkvæðagreiðsla kannski á næsta fundi. Ég geld ákveðinn varhuga við því að þetta sé merki um einhvers konar fljótaskrift.