157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:20]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Flokki fólksins styðjum þetta mál enda er þetta tiltekt. Við erum að taka til vegna þess að fyrri ríkisstjórn olli hér öngþveiti á leigubílamarkaði. Mér finnst miður að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins skuli ekki vera með okkur í því að taka þátt í þessari tiltekt, að samþykkja þetta frumvarp. Við erum að koma þessum markaði í betra horf, almenningi til heilla og öryggi farþeganna einnig.