leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Það kemur svo sem ekkert á óvart að hér sé verið að fara til baka, spóla aftur í tímann. Það er margt í tíð núverandi ríkisstjórnar sem minnir mann á afturhvarf áratugi aftur í tímann í hugsunarhætti og gjörðum. Við skulum ekki gleyma því af hverju lögin sem nú gilda voru sett. Það var út af því ástandi sem var hér á leigubílamarkaðinum þegar ungt fólk var á einhverjum fésbókarsíðum að bóka sér bíla, og frelsi var veitt í þessu. Hv. þingmenn Viðreisnar komu meira að segja upp þá og töluðu um að ekki væri gengið nógu langt í átt til frelsis í þessum málum. En eins og í mörgum málum núna þá sitja þeir hjá og horfa niður hljóðir og samþykkja mál. En við skulum hafa eitt á hreinu: Ráðherra hefur haft reglugerðarheimildir til að takast á við öll þau vandamál sem upp hafa komið. Þær eru til staðar í núverandi lögum. Ráðherra hefði getað gripið strax til aðgerða ef hann hefði viljað, en það er búið að þvælast hér í eitt og hálft ár með þetta mál.