157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:28]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég segi já við þessu af því að við þurfum líka að horfast í augu við raunveruleikann. Þegar frelsið er annars vegar, þetta dýrmæta frelsi, þá eiga fólk og þingmenn að vita að frelsi er með ábyrgð. Það er mín afstaða. Þess vegna teljum við rétt að taka þetta skref, að varðveita frelsið, með því að ýta undir ábyrgðina sem því fylgir. Þess vegna segi ég já við þessu frumvarpi. Þetta skiptir máli fyrir neytandann og íslenskt samfélag.