leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á hér áðan þá styðjum við þessar breytingar. Það er mikilvægt að endurskoða og rýna löggjöf reglulega og öryggi farþega skiptir gríðarlega miklu máli. Eins og ég segi hvet ég ráðherra til að halda áfram í þessari vinnu en að passa jafnframt upp á að þegar við erum að endurskoða og breyta og rýna löggjöfina séum við ekki að koma í veg fyrir nútímavæðingu, tæknibreytingar og samkeppni. Þessir hlutir geta farið saman og þeir eiga að fara saman. Pössum upp á það í áframhaldandi breytingum íslensku samfélagi til heilla.