leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að setja neitt út á vinnubrögðin í þessu máli. Ég held að þau séu bara öll ágæt og málið hafi fengið góða umræðu. Ég er hins vegar á móti því að hér sé verið að veita falskt öryggi. Eins og ég kom inn á áðan þá hefur það margsýnt sig að þau lög sem voru sett hér síðast voru mun strangari en löggjöfin var áður, með einni ströngustu atvinnulöggjöf sem til er. Það hefur hvergi komið fram að það ófremdarástand sem vissulega myndaðist á leigubílamarkaði hafi verið vegna skorts á stöðvaskyldu. Ég veit ekki betur en að flestir sem undan var kvartað hafi verið skráðir á leigubílastöð. Ég sé ekki hverju þessi lög eiga að breyta. Þetta er falskt öryggi. Það er framkvæmd laganna sem skiptir mestu máli og það er hún sem hefur farið úrskeiðis. Ég er því hissa á að fulltrúi framkvæmdarvaldsins, hæstv. innviðaráðherra, hafi ekki gert eitthvað meira til að koma framkvæmdinni í lag heldur eytt öllum tímanum í einhverja sýndarmennsku í lagabreytingu. Ég segi því nei.