leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Þegar umrætt mál var samþykkt var alveg skýrt að það var ætlun löggjafans að betrumbæta leigubílamarkaðinn á Íslandi. Ég var fyrst varamaður á þingi 2017, ef ég man rétt. Síðan var ég þingmaður í þrjú ár á síðasta kjörtímabili. Þau orð sem ráðherra lét út úr sér hér áðan eru kannski ástæða þess að þetta mál er eina málið þar sem ég hef upplifað aðkast í minn garð. Að við höfum verið að opna á gróðrarstíu glæpa með því að opna leigubílamarkaðinn á Íslandi. (Gripið fram í.) Nei, hæstv. ráðherra var að því hér áðan. Veruleikinn er þessi: Að sjálfsögðu styð ég breytingar á þessu máli til góðs. Ég mun gera það áfram. Það er ekkert nýtt að við tökum hér mál til umræðu og betrumbætum þau. En vöndum orðalagið hér í pontu. Það skiptir máli að setja góð lög í landinu en það skiptir líka máli hvernig við komum fram.