157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:12]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir umræðuna sem er góð og hér er klifað á ýmsu. Sumt af því hefur tilhneigingu til að verða klisjukennt óhjákvæmilega, eins og t.d. þegar sagt er að íslenskan sé lykill að atvinnulífi og lykill að samfélagi fyrir fólk. Raunin er sú að íslenskan er ekki þessi lykill sem hún ætti þó að vera heldur er gjörsamlega eðlilegt að menn lifi hér og starfi algerlega án þess að sjá þörf fyrir að læra íslensku. Það er vandinn þannig að við getum ekki haldið áfram að segja að íslenska sé svona mikill lykill. Hvorki þegar menn fá ótímabundið atvinnuleyfi né þegar menn fá ríkisborgararétt á Íslandi er alvarleg krafa gerð um íslenskukunnáttu. Það er lítil krafa gerð vegna ríkisborgararéttar og engin krafa vegna atvinnuleyfis. Þetta er ekki meiri lykill að samfélaginu en svo að bara fimmti hver útlendingur sem hingað hefur flust hefur lagt það á sig að læra íslensku, þannig að hún er ekki þessi lykill að samfélaginu sem hún ætti þó að vera. Það sama gildir um unga fólkið, þar heyrir maður af fjölda útlenskra barna sem eru í skólakerfinu og þrífast auðvitað alls ekki alveg fullkomlega án íslensku en leggja það ekki almennilega á sig og eru einhvern veginn ekki í þeirri stöðu sem innflytjendur voru í hérna forðum þegar þeir voru örfáir og voru nauðbeygðir til þess að læra íslensku. Sú tíð er að hluta til liðin vegna þess að menn geta hópað sig saman sem tala ekki endilega íslensku og þetta er að gerast þótt menn auðvitað læri eitthvað hrafl. Svo blandast við þetta sú staða að íslensk börn eru ískyggilega góð í ensku. Þetta er ákveðinn vítahringur og spírall sem við erum komin í sem er óafturkræfur ef hann fær að halda áfram mikið lengur.

Viðhorfið í þessari umræðu um íslenskuna hefur lengi verið að kröfur séu af hinu illa og þær séu vafasamar og afar vandmeðfarnar. En ég held, eins og staðan er orðin og ef þessi innflytjendastefna heldur áfram, að sú tíð sé liðin. Menn verði einfaldlega að fara að gera kröfur um íslenskukunnáttu. Það má fara saman við framboð af íslenskuþjálfun og íslenskukennslu; hvatar og kröfur og framboð af stuðningi er leiðin fram á við. Annars held ég að við séum áfram að stefna í mjög slæma átt. Ég held að það sé ekki hjálplegt (Forseti hringir.) ef hæstv. ráðherra t.d. lætur eins og þetta muni nú allt saman blessast, svona tiltölulega óháð því hvað við gerum. (Mennrh.: Það sagði ég ekki, hv. þingmaður.) Nei, en ef slíkt er gefið í skyn þá getur hæstv. ráðherra auðvitað …(Forseti hringir.) (Mennrh.: Ég gaf það ekki í skyn heldur, hafa rétt eftir. )— Við förum betur yfir þetta í næstu ræðum.