157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:20]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli sem er mér mjög hjartfólgið. Spurningar sem vakna með tunguna: Nær er íslenska vond og nær er íslenska góð? Og hvaðan sprettur þetta tungumál? Það varð ekki til bara hókus-pókus af sjálfu sér heldur þróaðist það af öðrum tungumálum, m.a. ensku. Við megum alveg gefa henni kredit fyrir það, hún á alveg smá í tungunni okkar.

Það sem mér finnst einna alvarlegast með íslenskuna er hvað hún er orðin pólitísk. Hún er orðin pólitískt verkfæri og hefur verið notuð á pólitískan hátt og jafnvel misnotuð. Þeir sem stjórna tungumálinu stjórna fólkinu sem neyðist til að nota tungumálið, þannig að hún er líka valdatæki. Við verðum að vera raunsæ þegar við horfum á tungumálið, ekki sem einhvers konar trúarkenningu heldur verkfæri sem við erum að nota dagsdaglega, ekki bara af því að það sé móralskt gott að nota það heldur vegna þess að það sé gagnlegt. Það er fullt af starfsemi á Íslandi sem fer fram á öðrum tungumálum. Það er verið að kenna í háskólunum á ensku og túrismi hér, sem er bara stór iðnaður á Íslandi, fer allur meira og minna fram á ensku eða öðrum tungumálum. Það væri ómögulegt að þvinga alla túrista til að læra íslensku. Mér finnst íslensk tunga vera eitt skemmtilegasta (Forseti hringir.) og án efa mest töff tungumál í öllum heiminum. Íslenska er töff og það versta sem við gerum gegn íslenskunni er að drepa hana úr leiðindum (Forseti hringir.) vegna þess að þá er hún hvorki skemmtileg, eftirsóknarverð né töff. Þá er hún bara leiðinleg og þá á enskan auðvelt með að sigla yfir hana.