157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:23]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði eitt sinn: Ef tungumálið tapast hverfa ekki bara orðin heldur einnig þekking og sjálfsmynd sem Íslendingar hafa byggt upp í gegnum aldirnar og þar með hættum við að vera þjóð. Við erum á hraðri leið að tapa tungunni, það sýna kannanir. Orðaforða- og hugtakaskilningur minnkar sem birtist svo í þverrandi lesskilningi barna og fullorðinna og það er bein ógn við lýðræðið. Til að ná innihaldi texta þarf að skilja 98% af orðunum í textanum. Erum við samfélag sem sinnum börnunum okkar nægilega vel? Er lesið fyrir börn? Er talað við börn á góðri íslensku? Er til skemmtilegt og gott myndefni á íslensku fyrir börn? Fá barnabókahöfundar nægilegan stuðning? Lýðræðið er í hættu þegar færri og færri geta skilið kjarnann frá hisminu, greint staðreyndir frá skoðunum, pælt sig í gegnum upplýsingaflóð og greint rétt frá röngu. Gagnrýnin hugsun og sköpun byggja hvort tveggja á íslensku. Við verðum að hafa orðin til að geta hugsað og tengt saman þekkingu úr ólíkum áttum og skapað. Gagnrýnin hugsun byggir á djúpum og miklum orðaforða sem myndar þekkingu. Því meiri þekkingu sem við búum yfir því auðveldara er fyrir okkur að gagnrýna, taka afstöðu og mynda okkur viðhorf. Staðan er grafalvarleg og samfélagið allt verður að vakna upp og taka höndum saman og snúa þessari þróun við. Það að geta tjáð sig í ræðu og riti svo sómi sé að eykur líkur á lífsgæðum margfalt. Við verðum öll að gera okkur grein fyrir því að íslensk tunga er þjóðargersemi. (Forseti hringir.) Okkur ber skylda til að viðhalda og varðveita hana fyrir komandi kynslóðir.