157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:30]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Við sem þjóð getum verið stolt af því að eiga okkar eigið tungumál sem hefur varðveist að miklu leyti kynslóð fram af kynslóð í bókmenntum, menningu, listum og mæltu máli. Mörg tungumál hafa dáið út í gegnum tíðina í litlum málsamfélögum. Við lifum miklar þjóðfélagsbreytingar sem hafa haft mikil áhrif á tungumálið okkar, íslenskuna, sem gæti jafnvel leitt til þess að við glötum okkar tungumáli með einni kynslóð ef við leitum ekki allra leiða til að varðveita það með öllum ráðum. Börn og ungt fólk sem lifir í umhverfi tækninnar frá unga aldri er umkringt efni enskrar tungu sem síast hratt inn í þeirra málnotkun. Við fullorðna fólkið erum ekkert betri en unga fólkið við að nota enskuslettur í tíma og ótíma og munum jafnvel ekki eftir réttum orðum á íslensku um mörg hugtök þó að við eigum ótrúlega fjölbreyttan orðaforða í okkar tungumáli.

Mér hefur oft fundist að alþýða þessa lands væri það fólk sem heldur tungumálinu best við í málnotkun sinni og fjölbreyttum orðaforða. Það vill stundum loða við langskólagengið fólk, og ég vona að ég móðgi engan, að sletta mikið enskri tungu, oft algjörlega að óþörfu. Við fullorðna fólkið erum fyrirmyndir og eigum að leggja okkur fram um að tala góða íslensku. Íslenskukennsla þarf að vera í boði og aðgengileg fyrir það erlenda fólk sem flytur til Íslands og tekur þátt í okkar samfélagi.

Svo eru það fjölmiðlar, fyrirtæki, mennta- og menningarstofnanir, stjórnvöld og allir þeir sem lifa og hrærast í okkar samfélagi sem bera ábyrgð á því að viðhalda okkar ástkæra, ylhýra máli því það er ekkert sjálfgefið ef við sofnum á verðinum. Ég myndi vilja sjá enn meiri áherslu á íslensku í skólakerfinu og að átak verði gert í því að hafa merkingar á vörum og þjónustu hjá fyrirtækjum á íslensku eins mikið og mögulegt væri. Við þurfum vitundarvakningu almennt hjá almenningi um að varðveita íslenska tungu og þar eru íslenskar bókmenntir og listir mjög mikilvægur þáttur í að viðhalda lifandi tungumáli og góðum orðaforða í okkar litla málsamfélagi.