Staða íslenskrar tungu.
Virðulegi forseti. Ég vil víkja að þeirri stöðu sem hefur myndast vegna þess að hér á landi hefur erlendum íbúum fjölgað hratt sem hefur reynt á tungumálið okkar. Fólk kemur hingað alls staðar að og leggur samfélaginu lið með ólíkum hætti. Atvinnulíf blómstrar víða en áskörunin er sannarlega tengd tungumálinu okkar. Við verðum að þora að spyrja: Er áframhaldandi jafn hraður vöxtur og hefur verið undanfarin ár sjálfbær þegar horft er til samlyndis, tungu og menningar? Eða er okkur kannski alveg sama? Er okkur alveg sama um það hvernig tungumálinu reiðir af svo lengi sem hagvöxtur er sem mestur? Ég held ekki. Ég held þvert á móti að þeir stjórnmálamenn sem tala þannig séu á rangri leið. Það er ekki hægt að kalla hagvöxt raunverulegan sjálfbæran vöxt fyrir samfélagið ef áhersla á samheldni og tungumálið okkar fylgir ekki með. Það er þess vegna sem íslenskukennsla skiptir grundvallarmáli og það er þess vegna sem skiptir máli að við sjálf setjum þær kröfur sem við viljum að séu gerðar í íslensku samfélagi um tungumálið okkar og að við fylgjum þeim fast á eftir. Þar er stefna stjórnvalda, en ekki síst hvernig hún er framkvæmd og hvernig henni er fylgt eftir, eitthvað sem skiptir grundvallarmáli. Hvernig mælum við hvernig áherslur hæstv. ráðherra ná í gegn? Hvernig mælum við eftir þrjú ár, þegar þessu kjörtímabili lýkur, hvernig hæstv. ráðherra hefur tekist til með íslenska tungu? Það er spurningin sem ég sem þingmaður mun fylgja fast eftir. Það er lykilverðmæti fyrir okkar þjóð að við náum að halda tungumálinu lifandi, að við pössum upp á samheldnina okkar, pössum upp á að sundurlyndi skapist ekki. (Forseti hringir.) Þar er tungumálið okkar í aðalhlutverki og líka fyrir tækifæri allra þeirra sem búa hér á landi.