157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:35]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég vil nú byrja á að þakka málshefjanda og ráðherra fyrir þessa umræðu og öðrum sem hér hafa tekið þátt í mikilvægri umræðu. Við ræðum hér um stöðu íslenskrar tungu. Við undirbúning þessarar stuttu ræðu datt mér í hug saga eftir Sigrúnu Eldjárn sem ég las oft fyrir börnin mín um geimveruna B2 sem kom til jarðarinnar og kynntist bókum sem hann hafði fylgst með úr fjarlægð sem fólk leitaði upplýsinga í og skemmti sér yfir. Því nefni ég þetta hér að í mínum huga er það lestur sem er grundvallaratriði ef við viljum vernda íslenskuna og í raun gera veg hennar sem mestan. Á Íslandi er fjöldi rithöfunda sem halda íslenskunni hátt á lofti og það eru ansi margir Íslendingar sem leggja sig í líma við að vernda og varðveita íslenskuna, leggja sig fram um að tala gott mál, lesa auðvitað íslenskar bækur og eru á sama tíma tilbúnir til að sjá tungumálið þróast og eftir atvikum breytast.

Ég spurði rithöfund einn hvaða þrjú orð kæmu fyrst upp í hugann varðandi stöðu íslenskrar tungu. Ég spurði rithöfundinn þessarar spurningar vegna þess að rithöfundar hafa lifibrauð sitt af því að vinna með tungumálið og koma sögum og upplýsingum á framfæri við okkur með íslenskunni. Viðkomandi sagði: Virðing, vernd og varúð. Vöffin þrjú. Mér þótti þetta virkilega áhugaverð afstaða til íslenskunnar. Við eigum að bera virðingu fyrir íslenskunni, nota hana án þess að menga hana með slettum, hvetja til lesturs og gefa þeim sem hér eru ekki fæddir tækifæri til að tjá sig, þ.e. við skulum sýna þolinmæði og skilning. Við eigum að vernda tungumálið okkar þannig að við gleymum ekki hvaðan við komum en við eigum líka að gera okkur grein fyrir því hvert við erum að fara og það er hluti af verndinni að leyfa tungumálinu að þróast og gera okkur grein fyrir hvenær við látum breytingarnar laga sig að íslenskunni og hvenær íslenskan lagar sig að breytingunum, oftar hið fyrrnefnda þó. Þá komum við að varúðinni. Um leið og við virðum tungumálið okkar og verndum það þá þurfum við að gæta varúðar um það hvernig við vísum til íslenskunnar. Hún er okkar allra. Hún er ekki tól til að aðgreina hópa innan samfélagsins heldur á hún að sameina okkur. Á eyjunni bláu norður í Atlantshafi byggist menning okkar og í raun tilvera okkar að nokkru leyti á því að við tölum íslensku. Það gerir okkur sérstök og mikilvægt að allir sem hér búa tjái sig á okkar ástkæra, ylhýra tungumáli.