157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:40]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Já, sá sem hér stendur áttar sig á ábyrgð sinni og við munum auðvitað halda utan um það að aðgerðaáætluninni og verkefnunum sem eru inni í mismunandi ráðuneytum verði fylgt eftir. Þetta krefst þess að við vöndum okkur. Þetta krefst þess að við gerum betur og ég átta mig á því að á endanum krefst þetta líka fjármagns. Það er verkefnið. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að við notum ekki íslenska tungu, eins ofboðslega dýrmæt og hún er, til að egna hópum upp á móti hver öðrum.

Varðandi það sem hv. þm. Snorri Másson kom inn á þá erum við að þróa evrópska tungumálarammann og innleiða hann, sem nýtist okkur víða í samfélaginu, m.a. í atvinnulífinu, til að gera ákveðnar staðlaðar kröfur til tungumálakunnáttu í leikskólum, á sjúkrahúsum og annars staðar. Það snýst auðvitað ekki bara um að varðveita tungumálið. Það snýr bara að því að ungu börnin í leikskólunum fái örvun og að sjúklingarnir séu nú ekki í bráðri lífshættu. Þetta er auðvitað bara flókið og við erum líka í aðgerðaáætlun okkar að leggja áherslu á íslenskukennslu í heilbrigðiskerfinu og í leikskólum þannig að þetta er allt í vinnslu.

Það er hins vegar þannig að við búum í gerbreyttum heimi þar sem hreyfanleiki á vinnumarkaði er miklu meiri en áður. Hingað kemur fólk og starfar í mjög nauðsynlegum störfum. Það ætlar ekki allt að setjast hér að. Það er óraunhæft að gera þá kröfu að það muni læra íslensku eins og við sem drukkum hana með móðurmjólkinni og við þurfum að hafa umburðarlyndi og víðsýni til að leyfa fjölbreytninni að aukast á sama tíma og við þurfum að sinna af ábyrgð og festu öllu því sem lýtur að því að varðveita tungumálið okkar.