varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Jón Gnarr muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um að hún verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Diljá Ámundadóttir Zoëga, en fyrsti varamaður á lista hefur boðað forföll, og 1. varamaður á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, Eiríkur S. Svavarsson.
Diljá Ámundadóttir Zoëga og Eiríkur S. Svavarsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.