157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 758, um hlutfall erlends vinnuafls á heilbrigðisstofnunum á Íslandi og stuðning við íslenskunám þess, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni. Þá hafa borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 725, um endurgreidda fjárhagsaðstoð til sveitarfélaga vegna erlendra ríkisborgara, frá Diljá Mist Einarsdóttur og á þskj. 728, um barnalífeyrisgreiðslur, frá Rósu Guðbjartsdóttur. Að lokum hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 792, um mannauðsmál, frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.