athugasemdir varðandi samráð og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.
Virðulegur forseti. Það er ljótt að heyra lýsingar hv. þingmanna sem sitja í hv. utanríkismálanefnd vegna gestakomu vegna þessa máls. Það hefði verið full ástæða til þess fyrir hæstv. utanríkisráðherra að mæta á fund utanríkismálanefndar til að ræða málið áður en það fer í umræðu en ekki eftir að fyrri umræðu er mögulega lokið. Ég vildi hins vegar koma hingað upp til að gera athugasemdir við málið á fyrri stigum. Enn og aftur boðar þessi ríkisstjórn til blaðamannafundar til að kynna mál sem þingmönnum og þinginu hefur ekki verið kynnt áður. Á föstudaginn í hádeginu var boðað til blaðamannafundar til að kynna þingsályktunartillögu um þetta mikla mál sem menn vita að þjóðin skiptist í tvö horn um. Það var boðað til blaðamannafundar og það liðu margar klukkustundir þar til almennum þingmönnum gafst tækifæri til þess að kynna sér efni þingsályktunartillögunnar, það liðu margar klukkustundir þar sem þingmenn þurftu að lesa umfjöllun og jafnvel vangaveltur stjórnmálaskýrenda um málið. (Forseti hringir.) Þetta, virðulegur forseti, er óásættanleg framkoma gagnvart þingmönnum.