157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:13]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Eitt fallegasta samráð sem ríkisstjórn hvers tíma getur haft er samráð við þjóðina, að leita til þjóðarinnar um að fá niðurstöðu í ákveðið mál sem hafa verið skiptar skoðanir á í áraraðir. Fallegra samráð að mínu mati getur ríkisstjórn hvers tíma ekki boðað heldur en einmitt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkt mál. Hitt er síðan, og tala ég líka af reynslu eins og sumir ættu að gera hér í þingsal, að mér finnst miður hvað sumir þingmenn gera lítið úr störfum þingsins. Þingið er að fá núna þingsályktunartillöguna. Þá fer hún til hv. utanríkismálanefndar þar sem boðaðir verða gestir, sérfræðingar boðaðir, þar sem þetta mikilvæga mál, sem er fyrst og síðast innanríkismál, mun verða rætt í þaula. Þannig að ég bið ykkur í hv. stjórnarandstöðu: Ekki gera lítið úr þinginu og ekki gera lítið úr okkur sjálfum.