157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmönnum Ingvari Þórhallssyni og Pawel Bartoszek fyrir lögspekina. Lagatextinn er skýr: Samráð er skylt þegar um meiri háttar utanríkismál er að ræða og þegar meiri háttar utanríkismál er skal ávallt leita samráðs fyrir fram. Þetta er ekki flókið. En hins vegar voru athugasemdir stjórnarandstöðunnar á fundi nefndarinnar í morgun þríþættar og ég heyrði það að hv. þingmenn vildu síður minnast á hinar athugasemdirnar. Annars vegar er það samráðsleysið við almenning. Þó að hv. þm. Ingvar Þóroddsson og hæstv. ráðherra komi hér upp og tali um samráð við þjóðina þá er þegar búið að brjóta gegn reglum um samráð við þjóðina sem eru reglur um að mál skuli vera sett í samráðsgáttina. Hins vegar varðandi gestakomu hæstv. ráðherra sem talar um það hér í pontu að verið sé að gera lítið úr þingstörfum. Við hæstv. ráðherra langar mig að segja (Forseti hringir.) að hæstv. ráðherra, sem neitar að koma á fund utanríkismálanefndar til að ræða meiri háttar utanríkismál, hún er að gera lítið úr þingstörfum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)