athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Hér erum við með ríkisstjórn sem er búin að gefast upp á því verkefni að reyna að ná tökum á vöxtum og verðbólgu og atvinnuleysi í landinu. Við erum með ríkisstjórn sem ákveður að setja ekki í samráð við þjóðina eitt stærsta mál seinni tíma, setur það ekki í samráð. Af hverju ekki? Af því að það á að keyra þetta mál í gegnum þingið af því að það hentar hæstv. ríkisstjórn að við séum að tala hér um Evrópusambandið og atkvæðagreiðslur í staðinn fyrir að tala um það sem skiptir þjóðina máli í dag, sem er verðbólga, atvinnuleysi og háir vextir. Þetta er ástæðan. Það á að fara í kosningar 29. ágúst af því að það á ekki að eiga alvörusamtal við þjóðina í aðdraganda kosninganna þegar þjóðin er í sumarfríi og fólk vill njóta sumarsins með sínum nánustu. Þetta er ríkisstjórnin sem segist ekki vera hrædd við þjóðina en akkúrat allar þessar dagsetningar og þessar tímalínur sýna (Forseti hringir.) að hér er að verki ríkisstjórn sem er hrædd við þjóðina.