athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Mig langar að taka undir þá gagnrýni sem kom fram hérna hjá kollegum mínum á vinnubrögð þessa máls og ekki síst á viðbrögð þeirra þingmanna stjórnarmeirihlutans sem hafa komið hingað upp og lýst því yfir að hér sé verið að setja upp leikrit, þetta sé hjákátlegt og þar fram eftir götunum. Við skulum átta okkur á því að þetta er eitt stærsta hagsmunamál okkar þjóðar í áratugi og jafnvel lengri tíma en það. Þetta snýst um fullveldi okkar þjóðar sem við erum svo stolt af þannig að við skulum líka átta okkur á því að það að fara í þessa atkvæðagreiðslu sem flestir eru sammála um að skuli borin undir þjóðina — þetta snýst ekki bara um að halda einhverju áfram og kíkja í pakkann, eins og það hefur verið kallað. Um leið og farið verður í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu erum við að stíga gríðarlega stórt skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið. Þetta er ekki bara eitthvert formsatriði um áframhald, við erum að stíga mjög stórt skref þangað inn og við þurfum öll að átta okkur á því.