athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Frú forseti. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við hæstv. utanríkisráðherra. Ég veit ekki hvað hún er búin að segja oft orðin „þjóð mína“ hér í dag og nú er það þannig að þetta er þjóðkjörið þing. Hér ber að virða Alþingi og mér hefur þótt dapurt og við höfum komið hér ítrekað í fundarstjórn forseta þegar stjórnarmeirihlutinn hefur vaðið yfir minni hlutann í nefndum. Hér hefur ekki verið viðhaft lögbundið samráð. Framganga ráðherra í utanríkismálum og samráðsleysi hefur verið algjört og því verður hæstv. utanríkisráðherra að lifa með. Ég ætla að fá að nefna sem dæmi að við fréttum það í útlöndum að það ætti að skrifa undir varnarsamstarf við Evrópusambandið og svo fréttum við líka sömuleiðis að fyrir utanríkismálanefnd hefur heldur ekki komið samvinnusamningur um sjálfbærar veiðar sem hæstv. atvinnuvegaráðherra skrifaði undir. (Forseti hringir.) Ég vil beina því til forseta: Getur minni hlutinn treyst því, frú forseti, að forseti muni tryggja að öll málsmeðferð þessa máls í utanríkismálanefnd verði tryggð og að þeir gestir sem kallað verður eftir fái að koma fyrir nefndina? Að orðið verði við beiðnum um þau álit sem kallað verður eftir og álitum erlendra sérfræðinga og svigrúm gefið til þess? (Forseti hringir.) Ég óska eftir svari frá virðulegum forseta.