athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Mig langar líka til að koma aðeins inn á það í ljósi þess hve þetta í rauninni ber allt brátt að, þótt við vitum að það hafi legið fyrir að tillaga sem þessi yrði sett fram á kjörtímabilinu, að það er dálítið óhefðbundið að setja á dagskrá, núna um tveimur mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosningar, mál eins og þetta sem við vitum að klýfur þjóðina gjörsamlega í tvennt, í staðinn fyrir að gefa svigrúm á næstu vikum til að þjóðfélagsumræðan, einmitt útvarpsþættir sem hæstv. menntamálaráðherra vitnaði til hérna áðan, fái frekar að fjalla um málefni sem tengjast inn á sveitarstjórnarstigið og nærsamfélögin í stað þess að ræða ESB núna af fullum krafti næstu vikurnar og kljúfa þjóðina í tvennt í máli sem þessu. Þetta er algerlega óhefðbundið. Það hefur verið venjan að gefa sveitarstjórnarkosningunum og umræðunni smá svigrúm til þess að fara (Forseti hringir.) í aðrar áttir núna rétt fyrir kosningar.