aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Frú forseti. Nei, þetta kallast nefnilega ekki forysta. Þetta kallast forystuleysi, algert forystuleysi og hæstv. forsætisráðherra er uppvís að því að ráða ekki við það verkefni sem hún kallaði eftir að taka að sér hér í aðdraganda kosninga í nóvember 2024. Þar sagði hæstv. forsætisráðherra að hún ætlaði ekki að kljúfa þjóðina í þessu máli. Hún ætlaði ekki að leggja í þessa vegferð vegna þess að það væru svo brýn verkefni hér heima sem þyrfti að leysa. Að berja niður verðbólgu með sleggju hefur ekki tekist, að ná niður vöxtum hefur ekki tekist. Hvað hefur gerst hér annað en það að staðan er verri? Hún er verri nú heldur en áður en ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum hér á landi. Hæstv. forsætisráðherra fullyrðir hér að það sé samstaða um þetta mál. Það er algerlega án nokkurra fordæma að einhver þjóð ætli að sækja um aðild að Evrópusambandinu þegar ekki er samstaða um það á þjóðþingi þeirra landa. (Forseti hringir.) Við erum búin að heyra það. Við heyrðum síðast formann Flokks fólksins (Forseti hringir.) segja á föstudaginn: Nei, nei, ég mun ekki „agitera“ fyrir þessu máli, ég er alfarið á móti þessu máli. Hæstv. ráðherra sagði á föstudag að (Forseti hringir.) efnahagsleg staða Íslands væri sterk og því væri þetta góður tími til að sækja um. En fyrir ári síðan (Forseti hringir.) sagði forsætisráðherra að hún treysti sér varla í verkefnið því að staðan væri svo slæm eftir síðustu ríkisstjórn.
(Forseti (HildS): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörkin.)