framhald viðræðna um aðild að ESB.
Virðulegur forseti. Íslendingar eiga nú þegar í miklum samskiptum og nánu samstarfi við Evrópusambandið, einstök ríki þess, fyrirtæki og stofnanir. Þessi miklu samskipti benda ekki til þess að það þurfi að gera stórkostlega breytingu á stöðu Íslands gagnvart ESB. Þeir sem vilja náin samskipti við Evrópu og Evrópusambandið hafa þau nú þegar. Hins vegar er alveg ljóst að mörgum, mjög mörgum Íslendingum, myndi sárna það verulega að Ísland yrði hluti af bandalaginu sjálfu vegna þeirrar eftirgjafar sem það óneitanlega hefur í för með sér á fullveldi og sjálfstæði landsins, jafnvel þótt einhverjir telji að sú eftirgjöf yrði lítil og meiri í sjón en í raun.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra, bara kalt mat hæstv. forsætisráðherra á því, hvort ávinningur ESB-sinna af því að leggja í þennan leiðangur sem nú á að hefja, sem gera má ráð fyrir að taki mörg ár, sé ekki léttvægur miðað við þær hörðu deilur og úlfúð sem hann mun alveg örugglega hafa í för með sér í okkar annars ágæta og samstillta landi.