157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

framhald viðræðna um aðild að ESB.

[16:03]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega spurningu. Ég held að þetta sé einmitt spurningin sem brennur á þjóðinni: Hver er ávinningurinn? Ég hef áður vitnað til þess að ég hitti sjómann á Sauðárkróki fyrir nokkrum vikum síðan sem sagði einmitt við mig: Ég hef heyrt málsmetandi fólk sem ég ber mikla virðingu fyrir og í grunninn treysti segja mér að það sé ekkert upp úr þessu að hafa, það sé ekkert að semja um, það sé enginn ávinningur. Ég hef líka heyrt málsmetandi fólk sem ég ber virðingu fyrir segja að það sé víst hægt að semja um eitthvað, enda hafi það verið gert í mörgum tilvikum. Get ég ekki fengið einhvern utanaðkomandi aðila, einhvern til að segja mér hvorum þessum aðila ég á að trúa? Um það snýst þessi þjóðaratkvæðagreiðsla, að það getur enginn, ekki ein einasta manneskja inni í þessum sal, skorið úr um það hvort ávinningurinn verði meiri en aðrar fórnir, ef flokka á þær í þann hóp, nema við fáum að sjá hver mögulegur ábati er, hver eftirgjöfin er. Ég hefði haldið að þeir hér inni sem hafa áhyggjur af þessu myndu gjarnan vilja sjá þetta skrifað á blað. Það er eðlilegt að hafa varann á sér í þessu máli. Þjóðin á að hafa fyrirvara í þessu máli en hún á ekki endilega að gefa sér það að það sé ekki hægt að svara þessum spurningum. Við höfum hins vegar sagt: Við munum virða þjóðina. Við virðum hana og við hlustum á hana og þess vegna munum við fylgja niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Um það snýst þessi spurning í einföldu máli.