157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

framhald viðræðna um aðild að ESB.

[16:07]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Þetta er tilfinningaríkt mál. Þetta er það tilfinningaríkt að það hefur eiginlega hangið yfir okkur í áratugi. Mörgum sárnaði á sínum tíma að fá ekki að greiða atkvæði um þetta. Ég geri ekki lítið úr því að þetta eru tilfinningaríkt mál. Mér myndi ekki detta það í hug að segja fólki að það megi ekki hafa sína skoðun á þessu máli. Þess vegna erum við að spyrja og við eigum að bera virðingu fyrir skoðunum fólks í þessu máli. Það var líka tilfinningaríkt mál að ganga í NATO. Vá, hvað það var tilfinningaríkt mál í áratugi. Og það var líka tilfinningaríkt mál fyrir fólk að ganga í EES og það verður tilfinningaríkt mál að ræða um aðildarviðræður að ESB. Það liggur alveg fyrir. Eins og ég segi: Er það ástæða fyrir því að við ættum við ekki að spyrja þjóðina hvað hún vill gera í þessu máli? Ég tel það ekki. En við munum virða skoðanir fólks á þessu máli sem ég veit að innst inni munu að miklu leyti byggja á tilfinningum og það er líka allt í lagi.