157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.

[16:13]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð eiginlega að viðurkenna að hún staðfesti það í raun að hún var að lýsa því yfir að það væri verið að sækja um núna vegna þess að staðan væri þannig á Íslandi að það myndi mögulega trekkja frekar að í þessari atkvæðagreiðslu að svara með þeim hætti sem hentar hæstv. ráðherra.

Mig langar að vísa til fleiri orða hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:

„Ég er mjög meðvituð um það að það að ganga í Evrópu­sam­bandið er verk­efni sem þorri þjóðarinnar verður að standa á bak við. Þetta þarf líka að koma frá gras­rót sem er ekki bara í pólitísku sam­hengi, verkalýðs­hreyfingunni. Þetta þarf að koma frá at­vinnu­rek­endum. At­vinnu­rek­endur og verkalýðs­hreyfingin hvort í sínu lagi eru ekki sam­einuð um þetta mál.“

Hefur eitthvað breyst í þessum efnum? Eru atvinnurekendur og verkalýðsforystan allt í einu sameinuð um þetta mál? Ég get alveg svarað því fyrir hæstv. ráðherra: Svo er ekki. Nú rétt áðan birtist skoðanakönnun sem sýnir einmitt vaxandi andstöðu hjá Samtökum iðnaðarins. Nú er einn fyrrum forkólfur verkalýðshreyfingarinnar ráðherra í hennar ríkisstjórn, maður sem hefur frá stofnun Flokks fólksins verið á móti aðild að ESB. (Forseti hringir.) Er þetta öll sameiningin sem hæstv. forsætisráðherra hefur talað um að þurfi að vera í þjóðfélaginu til að feta þennan Evrópustíg?

Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Telur hún Íslandi betur borgið innan ESB (Forseti hringir.) þegar horft er til samstöðu þjóðar og baráttu við efnahaginn eða treystir hún ríkisstjórninni til að gera það án þess að eiga hið svokallaða sæti við borðið? (Forseti hringir.) Og ég minni á, frú forseti, að það er bannað að plata, svo vitnað sé í orð forsætisráðherra.