157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.

[16:16]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Framsóknarflokkurinn vill forgangsraða í þágu heimilanna í landinu og ráðast í aðgerðir sem lækka verðbólgu og bæta fjárhag heimilanna. Hins vegar er það svo að verðbólga mælist 5,2%. Opinber þjónusta hefur hækkað um 27%, atvinnuleysi hefur aukist og útgjaldaaukning ríkissjóðs er fáheyrð. Plan forsætisráðherra er ekki að ganga upp. Sleggjan er orðin að buffhamri úr birkihríslu. Við í Framsókn höfum lagt til aðgerðir í efnahagsmálum sem miða að því að lækka verðbólgu og að hækka ekki opinber gjöld meira en verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, draga úr ríkisútgjöldum og skila hallalausum fjárlögum strax í ár. En hver eru svör ríkisstjórnarinnar við þessu? Forsætisráðherra segist máski ætla að fara í aðgerðir eftir páska á meðan fjármála- og efnahagsráðherra hefur sagt að ráðast eigi í aðgerðir á næstu dögum. Ég spyr því forsætisráðherra: Ætlar ríkisstjórnin að fara í aðgerðir sem miða að því að lækka verðbólgu eða er forsætisráðherra bara jafnvel búin að kasta handklæðinu inn til Brussel?