157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

forræði yfir auðlindum gagnvart ESB.

[16:26]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef verið alveg skýr á því í öllum þeim samtölum sem ég hef tekið, m.a., já, við þjóðarleiðtoga og innan Evrópusambandsins, svo það sé skýrt á hvaða forsendum Ísland myndi fara í þessa vegferð ef hún myndi yfir höfuð fara í hana, að það væru grundvallarprinsipp sem þyrfti að ræða, m.a. hvernig lifnaðarhættir okkar þjóðar eru. Við erum eyja og við erum ekki á meginlandi Evrópu. Við höfum reitt okkur á orku. Við höfum reitt okkur á sjávarauðlindina og það liggur alveg fyrir að það eru grundvallarprinsipp sem þarf að virða og það vita allir þá skoðun mína. Þetta kalla ég að veita forystu, sinna hagsmunabaráttu og senda skýr skilaboð um að ef við færum í aðildarviðræður, sem við vitum ekki hvort við förum í, þá væru þetta grundvallarprinsippin. Ég ætla ekki að leggja upp í þessari pontu nákvæmt orðalag varðandi slíka samninga. Við hljótum að geta sameinast um ákveðin grundvallarprinsipp og svo verður það auðvitað í lok dags þannig að við munum þurfa að meta það hvort það sem kemur út úr slíkum viðræðum sé í takti við þau prinsipp. En ég ætla bara að leyfa mér að fullyrða að þó að ég geti alveg tekið undir að þetta sé tilfinningaríkt mál og að það séu skiptar skoðanir um það held ég í lok dags að það séu ríflega, ef ekki langflestir, á þessu landi með sömu tilfinningarök og sömu fyrirvara á sér varðandi auðlindir okkar. Allir Íslendingar vita á hverju við byggjum. Það liggur alveg fyrir að ég er mjög meðvituð um það að við þurfum að fara í slíkar viðræður — ef við fáum umboð til þess, sem þessi atkvæðagreiðsla snýst um, hvort við förum í viðræður eða ekki — og setja skýr rauð flögg þegar kemur að þessu. Síðan þarf að meta það hvort við náum þeim markmiðum eða ekki. En nákvæmu orðalagi í þessari pontu ætla ég ekki að stilla upp. (Forseti hringir.)