157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

forræði yfir auðlindum gagnvart ESB.

[16:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Síðast þegar farið var í þessa vegferð var Ísland á öðrum stað. Síðast þegar var farið í þessa vegferð voru ákveðnir flokkar sem voru ósáttir við að þjóðin hefði ekki verið spurð hvort það ætti að fara af stað. Þess vegna er verið að gera þetta með ákveðnum hætti núna. Það er í góðu lagi mín vegna að fólk ræði um Evrópusambandið. Staðreyndin er bara sú að þrátt fyrir að aðilar hér í minni hlutanum telji sig vita nákvæmlega hvernig kostir og gallar aðildar myndu líta út fyrir Ísland þá treysti ég mér ekki til að fullyrða það. Ég veit ekki hvernig á því stendur að hér er fólk í minni hlutanum sem telur sig vita hvernig samningur, aðlögun, hvað svo sem á að kalla það, lítur út. Ég veit það ekki. Ég veit hins vegar að það er fjöldinn allur af löndum sem hefur farið þarna inn og fengið mismunandi samning. Það liggur alveg fyrir að reglum Evrópusambandsins hefur m.a. verið breytt í gegnum tíðina út af inngöngu ákveðinna ríkja. (Gripið fram í.) Þannig að ég á ekki erfitt með það (Gripið fram í: Jú, víst. )að lýsa því hér yfir að þegar ég tala við erlenda leiðtoga um þá vegferð (Forseti hringir.) sem Ísland er á, að leggja áherslu á það (Forseti hringir.) að ef við færum í þessar viðræður yrðum við hörð í horn að taka. Því að ef við förum í þessar viðræður mun ég gæta hagsmuna landsins. (Forseti hringir.) Ég mun gæta auðlinda landsins. Ég myndi alls ekki segja já við hverju sem er. Og það er ekkert athugavert (Forseti hringir.) við að þær upplýsingar sem hafa komið fram á blaðamannafundum erlendis komi líka aftur hér inn í þingið, (Forseti hringir.) enda hefur þetta allt verið sagt opinberlega.