málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegi forseti. Ég kallaði eftir svörum forseta hér áðan um hvort minni hlutinn gæti treyst því að forseti muni tryggja málsmeðferð þessa máls í meðförum utanríkismálanefndar. Ég hef ekki fengið nein svör frá forseta varðandi það. Ég kallaði sömuleiðis eftir því við forseta hvort það væri ekki rétt að fresta þessari umræðu þangað til utanríkisráðherra hefði komið og rætt við utanríkismálanefnd um það mál sem hér á að fara að ræða í dag. Það liggur fyrir að það var ekki haft lögbundið samráð við utanríkismálanefnd. Það var brotið gegn 24. gr. þingskapalaga. Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin vinni þetta mál af heilindum eins og hér hefur margoft verið ítrekað, bæði af hálfu hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra, og ég kalla eftir því að forseti svari þeim spurningum sem til forseta var beint fyrr í dag.