málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegi forseti. Ég vil koma forseta aðeins til varnar. Hér var þeirri spurningu beint til forseta hvort forseti gæti lofað því að málsmeðferð í utanríkismálanefnd myndi vera með þeim hætti að allir yrðu sáttir við. Það getur forseti auðvitað ekki vitað fyrir fram. Það eina sem sá sem hér stendur getur sagt er að hann mun gera sitt allra besta til að meðferð málsins verði eins góð og hugsast getur. Hvort það mun enda með því að sá sem hér stendur fái hér lofræður í lok þeirrar málsmeðferðar verður að koma í ljós. Ég hef ákveðnar væntingar til þess. En að sjálfsögðu mun sá sem hér stendur gera sitt allra besta til að þetta mál fái eins vandaða þinglega meðferð og hugsast getur.