málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegur forseti. Ég er hálfslegin eftir þennan fyrirspurnatíma sem var allur nýttur fyrir óundirbúnar fyrirspurnir á hendur hæstv. forsætisráðherra. Ég verð að segja að ég furða mig á því að hæstv. forsætisráðherra hafi lýst því hér yfir að hún í sjálfu sér geti ekkert svarað því hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið eða ekki.
Ég hlýt að spyrja hér: Er ekki einu sinni þingmeirihluti fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið og ætla menn að fara í einhverjar viðræður þegar það er ekki einu sinni þingmeirihluti fyrir viðræðum fyrir inngöngunni? Ég óskaði eftir því að hæstv. forsætisráðherra svaraði mér því hvort hún ætlaði að halda hér ræðu og eiga orðastað við þingmenn en hún svaraði því ekki í andsvari eða í svari við þessari fyrirspurn. Ég hvet hana til að gera það. Hér hefur ekkert verið rætt um kostnaðinn og það hefði verið áhugavert að heyra frá hæstv. forsætisráðherra hvort hún hafi hugmynd um þann kostnað sem leggst á skattgreiðendur bara af aðildarviðræðum, verði þær samþykktar í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Hver er fyrirliggjandi kostnaður? Hann taldi (Forseti hringir.) í milljörðum árið 2009. Hver er kostnaðurinn núna? (Forseti hringir.)