157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:38]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með hv. þingmönnum og kollegum mínum sem hafa óskað eftir liðsinni hæstv. forseta eins og við höfum margoft þurft að gera hér í þessum þingsal, því miður. Þótt hv. þingmaður og formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek, hafi komið hingað upp og lofað að gera sitt allra besta, þá, því miður, setjum við hv. þingmenn sem erum í stjórnarandstöðunni það í samhengi við nýlega framgöngu hans í hv. utanríkismálanefnd þar sem nefndarmönnum var hreinlega neitað um umsagnir og gestakomur. Þess vegna er brýnt að hæstv. forseti svari þessum umleitunum þingmanna.