málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Mér blöskraði hér orð hæstv. forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum áðan þegar hæstv. ráðherra virtist ekkert vita hvort það sé hægt að semja eitthvað við inngöngu í ESB. Hér erum við að tala um, með leyfi forseta, úr upplýsingabæklingi ESB:
„Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu [í Evrópusambandið] er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í sambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum Evrópusambandsins. Og þessar reglur eru ekki umsemjanlegar.“
Þetta er ekkert flókið mál og það er alger óþarfi að vera með einhverja upplýsingaóreiðu hér.