157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Mér brá nú aðeins að heyra að hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar ætli að fara að semja um afla við Evrópusambandið, hlutfall af uppsjávarafla. Hlutirnir gerast hratt hér og umræðan ekki einu sinni byrjuð fyrir alvöru. En ég vildi þakka hæstv. forseta fyrir að lýsa því þó yfir að hæstv. forseti geri ráð fyrir því að lögum verði fylgt, þingskapalögum þar á meðal. Skárra væri það nú. En ég ítreka engu að síður við forseta að hér hefur verið bent á það að lögum hafi einmitt ekki verið fylgt, þingskapalögum hafi ekki verið fylgt. Það er það sem við æskjum þess að hæstv. forseti bregðist við því að það er jú alvarlegt þegar ríkisstjórnin gengur stöðugt á lagið og að því marki að hún brýtur, að mati stórs hluta hv. þingmanna hér, þingskapalög svo ekki verður um villst.