157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:43]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Ég veit að hv. þingflokksformaður Samfylkingar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, fór eitthvað aðeins fram úr sér áðan varðandi samningsmarkmið og ég hef svolítið gaman af því. Við erum nefnilega ekki búin að vera mjög lengi í þessari umræðu og það er eðlilegt að hún byrji hressilega og það er eðlilegt að við séum einmitt að velta fyrir okkur þessum spurningum, þessum grundvallarspurningum. Aftur á móti snýst málið núna um þinglega meðferð málsins. Það snýst um það hvort það sé eðlilegt að hæstv. utanríkisráðherra komi fyrir utanríkismálanefnd áður en málið er kynnt, áður en það er sett á dagskrá. Ef ég skil hæstv. forseta rétt þá hefur forseti tekið af allan vafa hvað það varðar þrátt fyrir að því hafi verið neitað hér fyrr í umræðunni. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við sinnum nákvæmlega (Forseti hringir.) þessum málum vel, meðferð málanna. Það er mikil ábyrgð á okkur lögð hvað þetta (Forseti hringir.) stóra mál varðar og við verðum að vanda okkur.