málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Við erum í þessum dagskrárlið, fundarstjórn forseta, þar sem við erum að fjalla m.a. um ágreining um það hvort málsmeðferðin fari með eðlilegum hætti af stað. Hér hafa hæstv. ráðherrar lýst því yfir að ekkert óeðlilegt sé á ferðinni um leið og það liggur fyrir að þeir hafa neitað að koma fyrir hv. utanríkismálanefnd. (Gripið fram í.)Ráðherra er líklega í hliðarsal einhvers staðar eða einhverjir aðstoðarmenn því að framíköllin eru byrjuð. En á sama tíma og þessi umræða er að eiga sér stað er hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar farinn að velta fyrir sér samningum um uppsjávaraflann okkar, þar sem samningsstaðan er núna og getur aldrei orðið betri heldur en sem fullvalda sjálfstæð þjóð, ekki bundin af því hvað okkur verður sagt að gera eða hverju okkur verður sagt að taka þátt í. Talandi um að einhverjir séu farnir að fara fram úr sér bendi ég þess vegna á að það er hægt að kíkja á orðræðu hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar hér undir þessum lið, bæði vídeófæl og hljóðfæl.