157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:46]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Í ljósi þess að hv. þingmenn koma hér aftur upp og fullyrða að hér hafi verið brotin þingskapalög ætla ég að koma aftur upp og segja að eins og ég les 24. gr. þingskapalaga er yfir allan vafa hafið að hér er ekki verið að brjóta þingskapalög. 24. gr. er þarna þannig að ríkisstjórnin sé ekki að taka einhliða ákvarðanir í utanríkismálum án þess að haft sé samráð við hið þjóðkjörna Alþingi. Hér er verið að leggja fram þingsályktunartillögu sem fer til meðferðar í utanríkismálanefnd að fyrri umræðu lokinni um að fela þjóðinni að taka ákvörðun um næstu skref í utanríkismálum. Þess vegna einfaldlega deili ég ekki þeim skilningi hv. þingmanna sem hér koma upp og halda því fram að verið sé að brjóta þingskapalög. Ég veit að ég hef ekki sömu þingreynslu og t.d. hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem kom hérna upp áðan en ég get lesið þennan texta eins og aðrir hafa gert hér í pontu.