málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Ég kem hér upp vegna þess að hæstv. utanríkisráðherra situr hér í hliðarsal og sakar þingmenn stjórnarandstöðunnar um upplýsingaóreiðu. Hún sakar þingmenn stjórnarandstöðu um upplýsingaóreiðu. Þetta þykir mér ansi lélegt og hæstv. utanríkisráðherra væri manneskja að meiri að koma hér upp og draga þessi ummæli til baka sem hún viðhefur hér í hliðarsal. Hún kemur ekki einu sinni hingað upp heldur dylgjar hér í dyrunum.
Staðan er bara þannig að þetta mál hefur hún unnið með embættismönnum í Brussel. Hún hunsar þingið, hún neitar að koma fyrir utanríkismálanefnd. Hún ætlar að koma fyrir utanríkismálanefnd þegar umræðunni er lokið hér í þinginu í andstöðu við 24. gr. þingskapalaga sem kveður á um (Forseti hringir.) að hún skuli koma fyrir nefndina áður. Það þýðir ekkert að hrista hausinn, (Forseti hringir.) hv. þm. Pawel Bartoszek, hún plottar — ég ætla að endurtaka það sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Forseti hringir.) sagði hér áðan: Hæstv. utanríkisráðherra plottar hér (Forseti hringir.) á bak við þjóðina með ESB.