157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:50]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mönnum verður hér tíðrætt um þingskapalög og vilja ekki fallast á að ákvæði þeirra hafi verið brotin. Ég nefndi hins vegar hér fyrr í dag undir þessum lið reglur um starfshætti ríkisstjórnarinnar, nr. 791/2018. Þær eru alveg skýrar um það að þegar ríkisstjórnin leggur fram þingsályktunartillögu eigi í fyrsta lagi að kynna málið varði það fleiri ráðuneyti en það ráðuneyti sem viðkomandi ráðherra fer fyrir. Þá á að kynna það viðkomandi ráðuneyti, fá umsögn þar, m.a. kostnaðargreiningar og annað. Það hefur ekki verið gert í þessu. Það er líka skýrt kveðið á um það að það eigi að leggja allar þingsályktunartillögur fyrir almenning til samráðs. Það var heldur ekki gert. Það er undanþága frá þessu ef brýna nauðsyn ber til en hér hefur því verið lýst trekk í trekk að málið hafi verið í undirbúningi í marga mánuði. Af hverju er þá farið með þetta mál eins og mannsmorð? Af hverju mátti ekki kynna þetta almenningi, þótt það væru ekki nema tvær vikur í samráðsgátt, (Forseti hringir.) og þingmönnum áður en blásið var til blaðamannafundar, þannig að kostnaðarmat lægi fyrir í þessu máli? Það er mjög erfitt að ræða þetta mál eins og fyrirhugað er í dag (Forseti hringir.) af því að það liggur ekki fyrir neitt kostnaðarmat frá öllum ráðuneytum Stjórnarráðsins. (Forseti hringir.) Það vantar í málið.