157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:52]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að koma hér upp og leiðrétta smámisskilning hjá fólki sem er að leggja orð í belg hérna. Við Íslendingar höfum þurft að semja um allar uppsjávarveiðar okkar, hvort sem það er norsk-íslenska síldin sem við veiddum í síldarsmugunni mest eða í færeysku lögsögunni og í íslensku lögsögunni og víðar, núna síðast við Noreg. Síðan þurftum við að semja sérstaklega um kolmunna við Færeyinga og fleiri þjóðir. Við höfum þurft að semja um makríl og annað þess háttar í gegnum tíðina. Í restina vil ég benda ykkur á að þegar tillögur koma frá Hafrannsóknastofnun á Íslandi fara þær til Kaupmannahafnar til Alþjóðahafrannsóknaráðsins og fá blessun sína og stimplun í rauninni.