málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegi forseti. Það hefur legið fyrir frá því að þessi ríkisstjórn tók til starfa, og síðast bara í desember, og það var alveg skýrt, að ég myndi leggja fram þessa þingsályktunartillögu á vorþingi. Ég upplýsti bæði utanríkismálanefnd og þingið, m.a. hér í salnum, um þessa fyrirætlan mína, þannig að það hefur legið ljóst fyrir. Ég vil hins vegar bera af mér sakir að ég hafi ekki viljað koma fyrir nefndina. Það er búið að ýja að því hér í allan dag frá því að fundarstjórn hófst að ég hafi ekki viljað koma fyrir nefndina. Ég er að mæta fyrir nefndina á fimmtudaginn. (Gripið fram í.)Nei, það var sagt hér úr þessum þingsal að ég vildi ekki mæta fyrir nefndina og ég er að mæta fyrir nefndina á fimmtudaginn. Fyrir utan það að þingsköpin eru með þennan ventil í þingsköpunum til þess að ríkisstjórnin geti ekki farið á bak við með alls konar mál. Ég get til að mynda nefnt viðauka við varnarsamninginn 2017 sem þáverandi utanríkisráðherra fór ekki með fyrir nefndina.
Ég get líka nefnt það að þegar afturköllun umsóknar átti að fara fram (Forseti hringir.) treysti þáverandi ríkisstjórn sér ekki til að fara fyrir utanríkismálanefnd heldur skrifaði bréf í leyni sem var ekkert að marka. (Forseti hringir.) Ég frábið mér svona vinnubrögð og svona ásakanir. Ég tel mikilvægt að við förum inn í umræðu um málið (Forseti hringir.) þannig að við getum rætt málið sjálft tæpitungulaust. Það er í þágu Íslands og íslenskra hagsmuna að við ræðum þetta mál efnislega. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (BHar): Forseti vill líka beina því til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að virða tímamörkin.)