málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Ég vil rétt koma inn á það aftur að utanríkisráðherra talar um þetta sem innanríkismál. Þau verða ekki mikið stærri, utanríkismálin, eins og við erum byrjuð að ræða hér og ræðum næstu daga, a.m.k. á morgun. Greinargerðin í þessu máli snýst bara um utanríkismál. Hún snýst bara um utanríkismál og það sem er þriðji kafli hérna, sem er þá nýtt núna, það er einhvern veginn verið að nota þá aðferð að hér sé allt í ruglinu varðandi varnar- og öryggismál þjóðarinnar og að ESB eigi að bjarga okkur með því að við göngum í Evrópusambandið til að verja okkur. Þetta er einhver nálgun sem bara stenst ekki skoðun og ég sé núna, þegar það eru níu þingvikur fram að þjóðaratkvæðinu á næstu fimm og hálfa mánuði, að það er einhvern veginn verið að kippa þinginu út úr þessari umræðu, sjá hvernig sumarið verður. Þetta eru örfáar vikur sem við höfum hér í þinginu til að ræða þetta risastóra mál. (Forseti hringir.) Það sem er lykilatriði í allri þeirri umræðu er að við fræðum þjóðina um öryggis- og varnarmálin, um þá stöðu sem er uppi, (Forseti hringir.) en hræðum ekki þjóðina.
(Forseti (): Forseti minnir aftur á að þetta er liður um fundarstjórn forseta.)