157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:57]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Já, ég hef athugasemdir við fundarstjórn forseta. Í fyrsta lagi finnst mér að forseti hefði átt að bregðast við þegar hv. þm. Jón Pétur Zimsen fór hér að lesa upp úr bæklingi frá Evrópusambandinu án þess að ég sæi að það tengdist fundarstjórn forseta nokkuð. Þetta var efnisleg umræða. Í öðru lagi finnst mér að forseti eigi að bregðast við þegar menn tala ítrekað um að ráðherra hafi neitað að mæta á fund utanríkismálanefndar þegar fyrir liggur að ráðherra ætlar sér að mæta á fund nefndarinnar á fimmtudag. Það má vel vera að einhverjum finnist það ekki nógu snemmt en engu að síður er það allt annað en að neita að mæta á fund. Í þriðja lagi var dylgjað um að þeir sem stæðu að þessu máli væru í einhverju baktjaldamakki með Evrópusambandinu gegn Íslandi. Mér finnst það okkur heldur ekki til sóma að tala með þeim hætti og ég held að forseti mætti bregðast við því næst ef það verður gert.