157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:58]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst reyndar margt annað hér ekki hafa verið til sóma í dag en látum það liggja á milli hluta. Hv. þingmenn og þeir sem eru að fylgjast með eru örugglega orðnir dauðleiðir á að hlusta á okkur þræta m.a. um þessa fundarbeiðni. Þegar hæstv. ráðherra kemur hér upp og fer að rifja eitthvað upp tíu ár aftur í tímann; mikið afskaplega hlýtur það að vera þreytandi.

Mig langar að segja að það var sú sem hér stendur sem óskaði eftir því að hæstv. utanríkisráðherra kæmi á fund nefndarinnar í dag, ekki á fimmtudaginn heldur á nefndarfundinn í dag. Þessi beiðni fór til formanns utanríkismálanefndar, nefndarritara allrar utanríkismálanefndar á hádegi síðastliðinn föstudag. Hún var ítrekuð þrisvar sinnum eftir það. Svarið var nei. Svarið var nei. Beiðnin sneri að fundinum í morgun sem þegar hefur farið fram, um að hæstv. utanríkisráðherra kæmi á fund nefndarinnar áður en umræðan ætti sér stað. Ef einhver er því að viðhafa hér upplýsingaóreiðu eru það stjórnarliðar.